Sundlaugin
Ný útisundlaug opnar miðvikudaginn 16. júní. Sundlaugin er 25 x 8,5 metrar að stærð, tveir heitir pottar annar með nuddi, gufa, vaðlaug og tvær stórar rennibrautir, önnur er bein braut með um 30% halla en hin er með um 11,5% halla og er mun lengri. Að auki er ein fílarennibraut fyrir minnstu börnin úti vaðlaugina. Umhverfisvænar lausnir notaðar í nýrri sundlaug Blönduósbæjar
Blönduósbær festi kaup á búnaði til framleiðslu á klór í tengslum við byggingu sundlaugar á Blönduósi. Jafnframt fellur til sódi við framleiðsluna sem notaður er til að stýra sýrustiginu (ph-gildi) og þarf því ekki að vera með kolsýru sem annars er notuð í þeim tilgangi. Klór er notaður til sótthreinsunar á sundlaugarvatni og er yfirleitt keypur tilbúinn og er blandað í vatnið eftir því magni sem þarf til sótthreinsunar. Samkvæmt reglugerð á sundlaugarvatn að hafa sýrustigið á milli 7,2-7,8. Kolsýra er notuð til að lækka sýrustigið þar sem tilbúinn klór hefur hátt sýrustig.
Tækið er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi og er framleitt af Van den Heuvel í Hollandi. Framleiðslan á sér stað með rafgreiningu og er salt eina afurðin sem þarf í framleiðsluna ásamt rafmagni og vatni. Framleitt er klórgas og það sett beint inn í sótthreinsun auk þess sem kerfið framleiðir klórvatn sem notað er til að mæta dagssveiflum í notkun. Helstu kostir nýja kerfisins eru:
• Lítill framleiðslukostnaður
• Enginn flutningur á milli staða á hættulegum efnum
• Klórlykt minnkar
• Sviði í augum minnkar verulega
• Húðerting minnkar
• Vistvænt fyrir starfsfólk
• Skemmir ekki fatnað við flutning á klór
• Stuðlar að umhverfisvænu umhverfi
• Sundlaugargestum fjölgar þar sem ekki er lengur um óþægindi af klór að ræða
Ókosturinn er að stofnkostnaður við kerfið er mikill en á móti kemur að rekstrarkostnaður er mjög lágur.
Kaupin á tækinu samræmast vel umhverfisstefnu Blönduósbæjar þar sem lögð er áhersla á að minnka notkun hættulegra efna sem skaðað geta lífríkið á svæðinu en klór getur verið afar hættulegur lífríkinu ef hann kemst í nægum styrkleika í umhverfið.
Opnunartímar
Vetraropnun
Opnunartímar:
Sundlaug:
Mánudaga til fimmtudaga er opið frá kl. 06:45 til 9:00 og 15:00 til 20:00
Föstudaga er opið frá kl. 06:45 til 9:00 og 15:00 til 18:00
Laugardaga er opið frá kl. 10:00 til 18:00
Sunnudaga er opið frá kl. 10:00 til 16:00
Athugið:
- Hætt er að hleypa ofan í sundlaugina 30 mín. fyrir lokun.
- Gestir Íþróttamiðstöðvarinnar skulu yfirgefa húsið eigi síðar en 15 mín. eftir lokun.

