Um Íþróttamiðstöðina Blönduósi

Sundlaugin: Ný útisundlaug opnar í júní 2010. Sundlaugin er 25 x 8,5 metrar að stærð, tveir heitir pottar, gufa, vaðlaug og þrjár rennibrautir fyrir alla aldurshópa.

Þreksalurinn: Nýji þreksalurinn opnaði 12. febrúar 2010. Keypt voru Technogym líkamsræktartæki. Að auki er búið að innrétta sérstaka aðstöðu fyrir lyftingamenn á svölunum í íþróttasalnum.

Íþróttahús: Íþróttahúsið var vígt 6. september 1992. Íþróttasalurinn er 23 x 40 metrar að stærð sem er löglegur handknattleiksvöllur, 4 blakvellir, 6 badmintonvellir, 3 körfuknattleiksvellir og 1 tennisvöllur. Einnig er mikið úrval tækja og áhalda til íþróttakennslu.

Áhorfendastúka tekur allt að 600 manns í stæði.