Fótbolti fyrir konur á öllum aldri

07.09.2010
Líkt og í fyrra verður fótbolti í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi fyrir konur á öllum aldri sem kallast "Old girls". Spilað verður á miðvikudagskvöldum kl. 19:00 – 20:00. Allar konur velkomnar í smá hlaup og skemmtilegheit. Nánari upplýsingar gefur Kristjana í sím 452-4118 eða 849-4649.


Vetraropnun

31.08.2010
Bæjarráð Blönduósbæjar hefur samþykkt nýjan opnunartíma sundlaugarinnar í vetur. Bæjarráð leggur til að sundlaugin verður opin eins og hér segir:

Mánudaga-fimmtudaga frá kl. 6:45-9:00 og 15:00-20:00

Föstudaga frá kl. 6:45-9:00 og 15:00-18:00

Laugardaga frá kl. 10:00-18:00

Sunnudaga frá kl. 10:00-16:00

Ofangreindur opnunartími verður endurskoðaður fyrir lok október.



Sumaropnun lýkur 31. ágúst

27.08.2010
Sumaropnun Íþróttamiðstöðvar og sundlaugar lýkur 31. ágúst.

Vetraropnun auglýst fljótlega!

Þeir sem hafa áhuga á að leigja tíma í íþróttamiðstöðinni í vetur vinsamlegast skilið inn skriflegum umsóknum til starfsmanns eða á netfang umsjónarmanns: mummi@blonduskoli.is fyrir 1.september.

Nýjar myndir

18.08.2010
Nýjar myndir í myndasafni vefsins af vígslu sundlaugarinnar og einnig loftmyndir af sundlaugarsvæðinu og Blönduósbæ. Ljósmyndari: Róbert Daníel Jónsson.





Sundlaugin formlega vígð 17. júlí

19.07.2010
Nýja sundlaugin á Blönduósi var formlega vígð á Húnavöku í blíðskaparveðri á laugardaginn að viðstöddu fjölmenni. Valgarður Hilmarsson stjórnaði dagskránni en m.a. ræðumanna voru Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri, Ágúst Þór Bragason forseti bæjarstjórnar, Þóra Sverrisdóttir oddviti Húnavatnshrepps, Jón Bjarnason ráðherra og fulltrúar Sundsambands Íslands og UMFÍ.
Skólalúðrasveit Seltjarnarness undir stjórn Kára Húnfjörð Einarssonar lék nokkur létt lög milli atriða en það var svo Einar Þorláksson fyrrum oddviti Blönduósshrepps sem klippti á borða til marks um formlega vígslu sundlaugarinnar. Að því loknu gat almenningur skellt sér í sund.

Tekið af huni.is >>




Rúmlega 8400 manns á tæplega mánuð

14.07.2010
Sundlaugin okkar á Blönduósi hefur heldur betur slegið í gegn hjá heimamönnum og ferðamönnum sem leið eiga um þjóðveg 1 í gegnum Blönduós. Rúmlega 8400 manns hafa sótt laugina frá opnun þann 16. júní s.l. og er Guðmundur Haraldsson forstöðumaður laugarinnar himinlifandi yfir aðsókninni. Hann segist hafa átt von á góðri aðsókn en þetta hafi farið langt fram yfir hans björtustu vonir.
Nú stendur formleg vígsla fyrir dyrum á Húnavöku, nánar tiltekið á laugardaginn kemur kl. 12:00 og eru því iðnaðarmenn á fullu við fegrun utan við sundlaugarsvæðið sjálft. Þar er verið að helluleggja, leggja út mold, þökuleggja og fleira. Fréttaritari skrapp með myndavélina á svæðið í gær og náði nokkrum myndum af mönnum við störf.

Tekið af huni.is >>

 

2760 hafa komið í nýju sundlaugina til þessa

21.06.2010
2760 manns hafa skroppið í sund í nýju sundlauginni á Blönduósi frá opnun
Nýja sundlaugin okkar á Blönduósi hefur svo sannarlega slegið í gegn frá því að hún var opnuð fyrir 5 dögum síðan. Í samtali við Guðmund Haraldsson, forstöðumann Íþróttamiðstöðvarinnar, hafa bæjarbúar og aðrir gestir fjölmennt í sund og hafa hlutirnir gengið nokkuð vel fyrir sig þrátt fyrir nokkra hnökra í upphafi eins og gengur og gerist þegar svona stór mannvirki er opnað. Guðmundur tjáði Húnahorninu að frá opnun væru gestir sundlaugarinnar 2760 talsins en á laugardeginum komu tæplega 1300 manns í laugina.
Enn er nokkur vinna eftir við sundlaugina sjálfa og umhverfið í kring en stefnan er sett á að klára það fyrir formlega opnun sundlaugarinnar á Húnavöku dagana 16. – 18. júlí.

Tekið af huni.is >>

 

Nýja sundlaugin tekin í notkun í dag

15.06.2010
Um það bil 250 manns komu í nýju sundlaugina á Blönduósi fyrsta opnunardaginn. Að auki kom talsvert af gestum til að skoða svæðið. Tókst opnunin mjög vel og voru sundlaugargestir ánægðir með sundlaugarsvæðið og höfðu mjög margir orð á því að það væri vel upp sett og skemmtilegt fjölskyldusvæði. Rennibrautirnar slógu án efa í gegn hjá öllum aldurshópum.

Enn er ákveðnum verkum ólokið við laugina og verðum þeim lokið á næstu vikum.

Samantekt af öðrum miðlum og myndasíðum sem gaman er að skoða má finna hér fyrir neðan:

Frétt á mbl.is >>

Myndir sem Sigríður Bjarney Aadnegard tók í dag >>

Frétt á huni.is >>

Stóri sundlaugardagurinn - Eftir Jón Sigurðsson >>

Myndir sem Jón Sigurðsson tók í dag >>

Myndir sem Mummi Haralds tók í dag >>




Íþróttamiðstöðin á Blönduósi sumaropnun

14.06.2010
Sumaropnun sundlaugar og þreksals

Íþróttamiðstöðin verður lokuð mánudaginn 14. og þriðjudaginn 15. júní.
Miðvikudaginn 16. júní ætlum við að fá nemendur sem voru síðastliðin vetur í 4., 5. og 6. bekk í Grunnskólanum á Blönduósi til að mæta kl. 13:30 með sundföt í Íþróttamiðstöðina. Þau verða þau fyrstu sem formlega fara í sund í nýju lauginni enda búin að sýna ótrúlega þolinmæði vegna framkvæmdanna.

Íþróttamiðstöðin verðu síðan opin almenningi (bæði sundlaug og þreksalur) miðvikudaginn 16. júní kl. 14:30 til 20:00 og fimmtudaginn 17. júní kl. 15:30 - 19:00


Frá og með 18. júní verður Íþróttamiðstöðin opin sem hér segir:

mánudaga til föstudaga kl. 9:00 til 21:00

laugardaga og sunnudaga kl. 10:00 til 18:00



Gjaldskrá er sýnileg hér á vef íþróttamiðstöðvarinnar >>

Í búningsklefum og á sundlaugarsvæði eru skilti með öryggis- og umgengnisreglum. Við hvetjum alla til að lesa þær vel yfir og fara eftir þeim. Sérstaklega viljum við biðja foreldra um að lesa eftirfarandi reglur:

REGLUR um öryggi á sundstöðum og við kennslulaugar

2. Sundgestir / umgengnisreglur
2.1 Börnum undir 8 ára aldri er óheimill aðgangur að sundstað nema í fylgd með syndum einstaklingi 14 ára eða eldri. Miðað er við fæðingarár. Ekki skal leyfa viðkomandi að hafa fleiri en tvö börn með sér. Þetta á þó ekki við um börn í fylgd foreldris eða forráðamanns.

2.2 Ábyrgðarmaður ber ábyrgð á þeim einstaklingi eða einstaklingum sem eru í fylgd hans. Hann skal einnig sjá um að ósyndir noti armkúta eða sundjakka af viðurkenndri gerð sem sundstöðum ber að hafa til útláns. Þrátt fyrir þetta ákvæði hafa laugarverðir sömu skyldum að gegna gagnvart þessum börnum eins og öðrum sundgestum þó að þau njóti sérstakrar gæslu fylgdarmanna.
Þó börn séu orðin 8 ára þá hvetjum við foreldra til að senda þau ekki ein í sund fyrstu skiptin ef langt er liðið frá síðustu sundferð og aldrei ef barnið er ekki orðið synt.

Einnig viljum við hvetja foreldra til að brýna fyrir börnum sínum að fara eftir þeim reglum sem settar eru og fara að fyrirmælum starfsmanna Íþróttamiðstöðvarinnar í hvívetna.

Nýja sundlaugin formlega vígð á Húnavökunni

14.06.2010
Samkvæmt drögum að dagskrá fyrir Húnavöku kemur fram að nýja sundlaugin verði
formlega vígð laugardaginn 19. júlí kl. 12:00.








Upplýsingar

Íþróttamiðstöðin Blönduósi
Melabraut 2
540 Blönduós


Sími: 452 4178







-------------------------------



Íþróttamiðstöðin á facebook

  • -------------------------------------------------

Vetraropnun


Opnunartímar
:

Sundlaug:

Mánudaga til fimmtudaga er opið frá kl. 06:45 til 9:00 og 15:00 til 20:00

Föstudaga er opið frá kl. 06:45 til 9:00 og 15:00 til 18:00

Laugardaga er opið frá kl. 10:00 til 18:00

Sunnudaga er opið frá kl. 10:00 til 16:00


Þreksalur:

Mánudaga til fimmtudaga er opið frá kl. 06:45 til 21:00

Föstudaga er opið frá kl. 06:45 til 18:00

Laugardaga er opið frá kl. 10:00 til 18:00

Sunnudaga er opið frá kl. 10:00-16:00




Athugið:

- Hætt er að hleypa ofan í sundlaugina 30 mín. fyrir lokun.

- Gestir Íþróttamiðstöðvarinnar skulu yfirgefa húsið eigi síðar en 15 mín. eftir lokun.





  • -------------------------------------------------
Umgengnisreglur í Íþróttamiðstöð >>