- 1. Útiskó skal setja í skóhillur.
- 2. Að loknum tímum fari nemendur án tafar í bað. Kennari getur veitt undanþágu frá baðskyldu ef þurfa þykir.
- 3. Til íþróttaiðkana er skylt að hafa þann búnað, sem kennari/þjálfari ákveður. Í salnum má ekki nota íþróttaskó, sem hætt er við að liti eða rispi gólfið.
- 4. Háreysti, átök eða hrindingar er bannað að hafa í frammi í búnings- og baðklefum.
- 5. Fara skal varlega með öll áhöld í íþróttasal. Í lok hvers tíma skal kennari/þjálfari sjá um, að nemendur gangi snyrtilega frá öllum áhöldum á sama stað og þau voru tekin.
- 6. Engin ábyrgð er tekin á þeim verðmætum, sem ekki er komið til geymslu hjá húsverði.
- 7. Reykingar bannaðar í húsinu. Notkun tyggigúmmis er óheimil.
- 8. Notkun "harpix" er aðeins leyfð í samráði við forstöðumann.
- 9. Baðverðir og þjálfarar íþróttafélaganna skulu sjá um að vel sé gengið um búningsklefa og böð.
- 10. Enginn flokkur má fara inn í íþróttasal fyrr en kennari eða þjálfari er mættur í sal.
- 11. Óheimilt er að fara með glerílát inn í búnings- og baðklefa.
- 12. Öll notkun farsíma og myndavéla er stranglega bönnuð í bað- og búningsklefum.
- 13. Hver sá sem brýtur þessar reglur og veldur við það skemmdum, skal bæta þær að fullu.
|